(ákvað að PM ekki stjórnendur heldur búa til þráð, til að fá líka viðbrögð frá öðrum)




Umsókn um starf blaðamanns á fréttastofu TSNG

Kæru stjórnendur The Sorp NewsGroup (Eða stjórnendur sorpsins)

Ég, vansi, öðru nafni **** ***** ***********, hef verið að íhuga það vandlega seinastliðna daga að sækja um fréttaritarastöðu á fréttastofu The Sorp NewsGroup að nýju, en hef gert það upp við mig að ég hef ekki tímaí að taka reglubundna fréttatíma 4. hvern dag. Svo það er ekki það sem ég er að sækjast eftir.

Hins vegar, eftir uppsögn hæstvirtrar Kyru, þá vantar mann til að taka viðtöl. Ég vil taka það að mér, það er, að koma með ítarleg viðtöl við sorpara inn á fréttakubbinn kannski 1. sinni eða 2. í viku eða þannig, þegar ég sé mér fært að taka viðtölin og senda þau inn. Ég mun ekki koma með fleiri en 3 á viku í allra mesta lagi.

Ferilsskrá í fjölmiðlageiranum:
Blaðamaður hjá blaðinu …Punktur… í einn mánuð í 7. bekk
Stofnandi og fyrrum aðalfréttaritari fréttastofu TSNG, starfstími 10 fréttatímar.
Útburðardrengur hjá Fréttablaðinu og DV

Með von um að þið takið þessa umsókn mína gilda,
vansi :}