Jæja, ég er veik :(… ekki beinlínis veik samt heldur,það var það þannig í morgun að ég var úti og var að labba niður einhverjar tröppur og svo rann ég beint með hnakkann á brúnina á einu þrepinu… það var svo ógeðslega, ógeðslega, ógeðslega vont!
Svo fórég í skólann en mér leið geðveikt illa þannig ég hringdi í mömmu og spurði hvort ég mætti fara heim, og þá fór mamma alveg í kerfi hélt áfram að spurja hvort mér væri flökurt og fleira og er búin að hringja þrisvar sinnum í mig síðan ég kom heim sem var klukkan 9, og svo er hún búin að fá pabba til að líta inn til mín á eftir… Allt þetta útaf því að ég gæti verið með heilahristing :S
En þið sorparar sem eruð inná núna af hverju eruð þið ekki í skólanum o.O
I love you, in a really, really big pretend to like your taste in music,