jæja…ég er að hugsa um að skella einni sögu…kem kannski með framhald ef ykkur líkar hún….enjoy:

Mizzeeh labbar í þröngu húsasundi þegar allt í einu stekkur Vansi fram. Baaaaaaaa öskrar Vansi og Mizzeeh bregður svo rosalega að hann stekkur upp á svalir sem voru fyrir ofan. Þá kemur Vettlingurinn út og fer að skamma Mizzeeh fyrir að vera með læti. Mizzeeh fer í fýlu og flýgur í burtu. Vansi felur sig aftur og bíður eftir næsta fórnalambi. Í næstu götu eru Supernanny, Honeynut og Kyra að reykja hass saman. Þær eru komnar í mikla vímu og eru farnar að sjá fljúgandi bleika fíla út um allt. Hey, þessi lítur alveg út eins og MadClaw segir Honeynut og hlær voðalega hátt. Svo fara þær allar heim til sín að sofa. Á meðan þessu öllu stóð fraus Vansi fastur. Vansi kallar á hjálp og þá gengur HerraFullkominn framhjá. Hjálp, ég er frosinn fastur segir Vansi. Pff… Þú ert greinilega ekki eins fullkominn eins og ég svarar HerraFullkominn og gengur í burtu. HerraFullkominn klessir óvart á ljósastaur og rotast. Á meðan kallar Vansi eins hátt og hann getur á hjálp en enginn heyrir.

Hvað gerist? Losnar Vansi? Mun HerraFullkominn liggja þarna rotaður í alla nótt?

stay tuned…