Það nístir í hjarta mitt að gera þennan þráð, og eyðileggja þar með flottu stigatöluna mína, en what the heck :}

Eins og titillinn segir, þá er ég að spyrja ykkur sem komuð á samkomuna og tókuð með ykkur myndavél, nennið þið ekki að fara að setja myndirnar á netið? Og MadClaw, hvenær kemur falda myndavélin í fyndnar klippur?

Og varðandi næstu samomu, hvenær verður byrjað að skipuleggja hana? Er komin ca. dagsetning, svo maður geti nú tekið kveldið frá :}

Hér með breytist stigatalan mín úr fæðingarári mínu í e-ð asnalegt 1.992, og sárnar mér það mjög, en þetta verð ég að fá að vita!