Ég er skyggn, var einmitt að pæla í að senda inn þráð um hver væri mikilvægasti sorparinn um daginn, og svo kemur þessi könnun, sem fjallar um næstum sama mál :}

En ég var að pæla, hver finnst þér hafa átt einna mestan þáttí að gera sorpið svona eins og það er?

Ég kýs Leif2, hann byrjaðiu hérna snemma á árinu eftir nokkra óvirkni áhugamálsins, og fékk fleiri inn með því að skemmtasér hér. Reyndar þekkjum við hann undir nafninu Mizzeeh, en Mizzeeh byrjaði ekki hérna fyrr en um mitt ár eða e-ð…

Hvað finnst þéR?