Ég ætla að nöldra smá og segja ykkur frá öðru sem gleður mig!

nöldur
Ég fór í intersport áðan, sá svona líka flottan Henson galla, var að spá í að biðja um hann, en þorði því ekki :/ Ég er feiminn :{
Ég sé eftir þessu, því mig langaði í hann, hann var flottur á litinn, mjög stór, og kostaði bara 1790 kr.
(sumum gæti fundist það stelpulegt að vera að kvarta yfir fötum, en málið er sko að mig vantar eiginlega föt, öll svo lítil sem ég á :/)

Hrós!
Ohhh hvað ég var happy í Krónunni áðan, þar er hægt að fgá jólaöl og appelsín, í bláu dósunum þið vitið.
Þetta er svo æðislegur drykkur, keypti kippu og hún er hálfnuð.
Ég vil þakka Egils fyrir að koma með þetta svona snemma!

Thx for reading :}