Það eru sumir að skrifa um draumana sína hérna…

þannig að ég ætla líka að gera það :) ..sérstaklega af því að það tengist sorpinu og huga.

Draumurinn byrjaði á því að ég var að klifra upp þvílíkt háan stiga úr reypi. Og ég var alveg að komast efst þegar ég lít niður!

Ég var í ca. 50 metra hæð..og þori varla lengra, en ég kemst upp á endanum og dríf mig heim..enda alveg uppgefin eftir klifrið! :P

…en þegar ég kem heim, þá er vínkona mín í tölvunni minni og inná huga…og hún var bara í rólegheitunum búin að vera í skítkasti við alla! ma. búin að senda inn hatursgrein á sorpið og ég veit ekki hvað og hvað….allt á mínu nafni!

ég sendi hana heim alveg brjáluð og les svo svörin sem voru að koma…allir reiðir útí mig =/



þá vaknaði ég :)