Mig dreymdi mjög dularfullan draum í morgun og það dularfulla er að ég man hann alveg :O

Allavegana þá voru ég og Kolla (Vinkona mín) á veitingastað. Síðan kom afgreiðslukallinn og ætlaði að spurja hvað við vildum fá og svona.
Hann var með svona Osama bin Laden skegg og rosalega lítill. Síðan fattaði ég að hann væri Death Eater (Úr Harry Potter, þeir sem lesa ekki Harry Potter þá eru það vondu kallarnir sem drepa alla með Voldemort)!
Ég var náttúrulega alveg bara: ‘OMG!’ og ætlaði að reyna að yfirbuga hann og svona en hann hótaði og drepa mig en þá svona fórnaði Kolla lífi sínu fyrir mig og Death Eaterinn kastaði svona töfrasprotum í hana, hitti ekki fyrst en svo í öðru kasti hitti hann og Kolla leið útaf. Death Eaterinn kastaði samt einum í viðbót til vonar og vara og hann lenti svona beint á milli augnanna á henni.
Síðan var ég geðveikt leið og var bara hágrátandi og svona og fór eitthvert og hitti eitthvað fólk sem ég þekkti og það sagði mér bara að komast yfir þetta og hætta að væla. Þá sagði ég haltu kjafti, ég væli bara þegar ég vil :)
Ég fór heim til mín og ætlaði að gera mig tilbúna fyrir jarðarförina hennar og ætlaði að fara í gömlu fermingarfötin mín í hana. En ég átti enga sokka til þess að fara í!
Þá fékk ég lánaða sokka hjá stelpu sem er í 10 bekk í gamla skólanum mínum og ég þekki eiginlega ekkert en hún bjó hjá mér og við vorum bara góðar vinkonur. Þá fattaði ég að ég væri alltaf að stela sokkunum hennar afþví að ég var í alveg eins sokkum og hún lánaði mér nema bara fjólubláir (Hinir voru hvítir).

Jájá… síðan man ég eiginlega ekkert meira.
Síðan vaknaði ég og venjulega er ég í sjokki ef að eitthvað kemur fyrir fólk í draumunum mínum og hringi í það til þess að gá hvort það sé ekki allt í lagi með það og svoleiðis nema núna þá er mér eiginlega búið að vera alveg sama :/ Dóninn er ég…
Ég elskaig