Öfund, ein af dauðasyndunum 7 (eða hvað sem þær eru margar…).

Öfund, sem hefur fylgt mannkyninu í langan tíma.

Öfund, tilfinning sem allir finna fyrir e-n tímann á lífsleiðinni.

Nú finn ég til öfundar!
Ég er öfundsjúkur út í strák, í bekknum mínum.
Hann er ofdekraður, fær m.a. 20.000 á viku fyrir að taka til í herberginu sínu, eða fara útmeð hundinn sinn.

Nú hins vegar, finnst mér hann búinn að ganga of langt.
Strákurinn, sem ekki er orðinn 16 ára, á SINN EIGIN BÍL!
Og það enga druslu, hann á grænan BMW, sem er örugglega ekki eldri en svona '98 eða e-ð solleis.
Ég sá hann í gær, hann er flottur!

Er synd að hata einhvern út aföfundí hans garð?