Örbylgjuofninn minn gefur frá sér hvalaleg hljóð.
Ætli hann sé andsetinn?
Eða kannski hann sé hvalur í álögum og það eina sem getur bjargað honum úr þeim er að stærðfræðikennari frá Úsbekistan kyssi hann. En þá myndi hann væntalega deyja fljótt þar sem hann myndi ekki fá neitt vatn. Nema ég myndi fara með hann út að Ölfusá og láta úsbekistanska kennarann kyssa hann þar. Þá gæti hann lifað frjáls að eilífu.


En þá myndi ég ekki fá neitt popp…

Tricky… (svo ég vitni í snilling) I knew a girl one called Pandora. Never got to see her box, though…