Í dag var ég að labba í skólann í hellidembu, með black sabbath í eyrunum.

ÉG labba að ljósunum og þá eru tveir drengir jafngamlir mér að fara hjóla yfir götuna, græni karlinn kemur og þeir hjóla af stað, sé ég ekki hvíta bíldruslu rennandi á veginum (greinilega að reyna að bremsa) klessa á einn strákinn.

Strákurinn fór ofan á húddið og rann svo af bílnum ofan í poll, hann stóð upp og fór á hjólið grátandi og bílstjórinn fór út og spurði hvort það væri allt í lagi.

Strákurinn með kökk í hálsinum muldraði já og ´hjólaði af stað.

Konunni leið greinilega hræðilega og var næstum sjálf farinn að bresta í grátur, svo kem ég labbandi á eftir með geislaspilarann að drepast úr hlátri..

Allir litu á mig eins og ég væri geðveikt leiðinlegur :O