Já, þannig er mál með vexti að ég og Addydogg vorum í stærðfræðitíma mjög snemma í morgun! Mér leiddist svolítið þannig ég ákvað að gera tilraun og prófa að kalla hana litla! Hún brást hin versta við og réðst á mig! Bæði með höndum og blýpenna! Ég komst sem betur fer næstum því heil útúr þessu, bara með smá far eftir blýpennan hennar á armbandsliðnum, þeim megin sem allar æðarnar og þar!
Niðurstaðan úr þessari tilraun er að hún Addydogg er ofbeldisfull ef maður kallar hana litla!
Og svo þegar ég fór að kvarta undan blýpennafarinu á armbandsliðnum þá varð hún svo stolt að hún sagði “I´m so proud of it, I put my name on it”! Og vitnaði þar með í hina skemmtilegu einhversskonar grill auglýsingu, stóri litli bróðir minn á þannig grill! =D Við grillum sælur á því! =D En hvað um það, þetta er alvarlegt mál með hana Addy mína! Hún bara réðst á mig og leit mig svo ILLU augnaráði! Ég varð hrædd, eða ekki! =D haha
En mig grunar nú samt að hún sé að undirbúa hefndaraðgerð eða eitthvað þaðan að verra þannig ég verð að hafa varann á, annars gæti bara verið stórhættulegt fyrir mig að fara í stærðfræði og það er nú hættulegt already þar sem ég fatta ekki neitt og stærðfræðibullið getur steikt baunina enn meira!! :|
We were swimming in the ocean