Ég var í bandí í dag (sem er btw. eina íþróttin sem ég er góð í) og var að ná boltanum af einum klikkuðum strák. Mér tókst það og hann ætlaði að ráðast á mig. En það tókst ekki af því að ég… *mont, restin er tekin út svo höfundur springi ekki úr monti*

En allavega stuttu seinna rak annar strákur olbogann óvart í kinnina á mér svo ég er með rauða kinn, kinnbein eiginlega. Og RÓSABALLIÐ ER Á MORGUN :O…