Nú fór ég í skólann í dag, fyrsta daginn eftir að ég kom frá London, og tók auðvitað nýja iPod nanoinn með til að monta mig smá :}

Nei nei, þá er stelpa í 9. bekk líka búin að fá svona, alveg eins! Næstum öll athyglin var á henni, ég var ekkert smá pissed!

Ég hélt ég ætti e-ð sem fáir ættu, en svo á bara stelpa í sama skóla og ég svona líka!

Ekki nóg með það, hún fékk sinn gefins, frá e-m frænda sínum, á meðan ég keypti minn alveg sjálfur út á kortið mitt (reyndar bauðst pabbi til að borga en ég vildi borga sjálfur).

ARG!