ég ætlaði að senda þetta inn í gær en þá var ég þegar búin að senda tvo korka…
já, um daginn var ég í tölvunni og vinkona mín var nýbúin að senda mér mynd af óóótrúúlegaa sætum gaur!;D kemur systir mín inn og sér myndina og spyr:“ Hver er þetta?” ég svara “ Hann heitir *****” hún horfi skringilega á myndina í smá stund og fór svo fram…
Svo kom að kvöldmat og mamma og pabbi voru e-ð að tala saman, segir þá ekki systir mín “ Það er STÓR mynd af stráki sem heitir ***** í tölvunni hennar ****!!!” ég sat stjörf í sætinu með gaffalinn í hendinni ( ég vil fá að bæta við að foreldrar mínir eru ekki bara afskiptasamir, heldur líka súper-overprotective!)
mamma og pabbi sátu og horfðu á sytur mína en svo snéri pabbi sér að mér og spurningarnar byrja að vaða, mamma bætti svo nokkrum inn líka.
á meðan sat systir mín með svona bitch glott á vör…..
er það bara, ég eða er fjölskylda mín evil? :/
I love you, in a really, really big pretend to like your taste in music,