Núna í morgun kom dálítið óvenjulegt fyrir mig, ég mundi 2 drauma eftir nóttina! Það gerist mjög sjaldan, ég man líka sjaldan 1 draum :{
Ég er svo stoltur af þessu minni mínu, að ég ákvað að setja þá hingað inn, og hef það líka fyrir ástæðu að annar þeirra tengist sorpinu :}
Ég ætla að- byrja á martröðinni, síðan á sorpdraumnum.

Er ég einn af heimsku krökkunum?
[forsaga]Það er þannig að ég missti úr í skóla meðan ég var úti, og umsjónarkennarinn minn sagði að ég gæti farið í sérkennslubekkinn í nokkra daga til að ná því upp
Ég er semsagt í skólanum, fyrsta daginn eftir fríið, og þegar ég mæti þarf ég að fara til skólastjóra eða e-ð þannig. Þegar ég fer upp til hennar segir hún mér að ég þurfi að fara í sérkennslubekkinn, eða heimskukrakkabekkinn eins og ég kalla hann, því ég var búinn að missa svo mikið úr.
Hún sagði að ég yrði að fara, og neyddi mig þangað inn.
Ég æpti, öskraði, gargaði á vægð, tók þessu semsagt ekki mjög hetjulega ;}
[mittalit]Þessi draumur fannst mér terrifying (rétt skrifað?), og vona að ég lendi ekki í þessu in da real life

TSNG í barnatímann?
Mig dreymdi semsagt að fréttastofan okkar væri með e-ð lítið hlutverk í fjölmiðlum e-s staðar annars staðar en á sorpinu.
Svo var ég og stelpa af sorpinu, annað hvort Lily2 eða supernanny (veit ekki hvor, man að ég var að tala við aðra þeirra) að tala saman á Essóstöðinni í Seljahverfi.
Ég var e-ð að segja að það væri gaman að færa TSNG á hærra stig, og hafa sorpfréttir í barnatíma stöðvar 2, og ætlaði að reyna að koma því í kring.
[mittalit]SNIÐUG HUGMYND! Við þurfum að koma sorpfréttum út af sorpinu, svo fleiri geti notið!

Hvað dreymdi ÞIG?