Eins og glöggir menn ef til vill vita, þá á ég það til að setja inn þráð þegar mér finnst ég hafa verið of óvirk á okkar elskulega áhugamáli. Á stundum sem þessum finnst mér ég þurfa að bæta upp fyrir alla þá þræði sem ég hefði átt að gera, og þessvegna geri ég þá langa og fína.

Því miður fyrir mig þá þarf ég alltaf að hugsa upp innihald korksins um leið og ég er að skrifa hann. Ég ýti einfaldega á ‘nýr þráður’ til að skrifa eitthvað, án þess að hafa hugmynd um hvað.

Það er stundum helst til pirrandi að hugsa um hvað maður á að skrifa. Oft kemst ég upp með að skrifa bull eins og ég hef skrifað hingaðtil í þessum korki. Þrjú greinaskil um það að ég eigi erfitt með að finna málsefni.

But fear not, my friends, because today I'm going to find something highly…um…not amusing (I'm not good at that stuff)…umm…higly…ICELANDIC! (So I'm going to have to stop writing in English…damn…)

Á þessum tímapunkti korksins er ég aftur farin að hugsa um það hvað ég á að skrifa um. Sorglegt, ekki satt?

Núna er ég aftur farin út í eitthvað rugl sem hefði verið mun gáfulegra að einfaldlega forðast. Hingað til hefur þessi korkur verið um fáránlega leiðinlegt efni sem á sér engan tilgang og hefur í raun engin réttindi til að vera svo mikið sem skrifað.

Ég fékk allt í einu þá hugmynd að fræða ykkur nánar um nafnið mitt, þegar ég mundi að ég hafði þegar gert það. Synd.

Mér hefur reynst erfitt að skrifa aðeins á íslensku síðan ég sagðist ætla að hætta að skrifa á ensku. Er það bara ég eða er það sorglega undarlegt?

Ég er að íhuga að enda þennan fullkomlega tilgangslausa kork. Ég mun verða mjög hissa ef einhver hefur skemmt sér yfir honum, þar sem þessi korkur fjallar einfaldlega um það hvað hann er tilgangslaus. Mér persónulega finnst það fáránlegt og myndi hoppa yfir þennan kork ef ég hefði ekki skrifað hann sjálf.

Ég enda því þetta tilgangsleysi áður en það tekur yfir heiminn.
Dance, my puppets! Dance! *Insert creepy-beyond-believe laughter here*