Ég var að skoða blogg hjá gellan123 og rakst á nokkuð gamalt eða þetta

Loller marr!! =D


Góðann daginn!! =) hehe
Í vikunni þá sagði hin yndislega vinkona mín mér lykilorðið sitt hér á hugi.is þannig nú vitum við þrjár [Ég, Lily2 og Addydogg] allar lykilorðin hjá hvor annari.
En já, ég ákvað að stríða henni Addý aðeins og breyta áhugamálunum hennar, eins og ég og Lily2 gerðum fyrir löngu þegar við sögðum hvor annari lykilorðin okkar! Barnalegur smáhrekkur, en er auðvitað bara gerður uppá fönnið og til að pirra hinn aðilann. Svo þegar Addý fór á huga þá tók hún eftir áhugamálabreytingunum hjá sér og það vildi svo skemmtilega til að hún grunaði Lily2 en ekki mig! =D Mér til mikillar hamingju og gleði! =D Svo hún Addý mín skrifaði þetta skemmtilega harðorða bréf til vinkonu okkar, hana Lily2! =D



“Kæra Lily2

ég sitt hér í tölvunni og er að skrifa þér harðort bréf.

Viltu vinsamlegast hætta að breita áhugamálum mínu, ég er fullfær um það sjálf þakka þér fyrir.

Kær kveðja Addydogg”


Ég fór inná skilaboðaskjóðuna hjá Lily2 til að sjá þetta skemmtilega harðorða bréf og varð alls ekki fyrir vonbrigðum afþví þetta er betra en ég hélt! =D Ég frétti fyrst að þessu í dag þegar við vinkonurnar söfnuðumst saman heima hjá Fjólu og chilluðum þar, hlustuðum á strumpalög og lærðum eins og sannir njöllar.. eða þær! =) ég teiknaði!! Þess má til gamans geta svo við verðum ekki álitnar algjörir nördar þá var þetta mjög “skemmtilegt” stærðfræði hópverkefni sem við erum tilneyddar til að gera og það á frídegi! =/

En það var mjög skemmtilegt að stríða Addý svona og nú á ég von á löngum áhugamálalista á næstu dögum, eða bara í kvöld! Því þegar við breytum áhugamálunum þá höfum við þau öll, bara svona uppá fönnið! Ekkert er skemmtilegra en að hlæja að pirruðum vinkonum sem fara í svakalega gervifýlu þótt þær séu að drepast úr hlátri.
Með kærri kveðju,
da mörgæs! =D

ps. þess má til gamans geta að mér finnst mjög gaman að skrifa þess má til gamans geta!

ps2. nei.. ekki playstation2! njölli..

ps3. loller marr er skrifað uppá fönnið þar sem það er mjög asnalegt að segja/skrifa svona!

ps4. Coyote Ugly er besta mynd í heimi! =D

ps5. mér er illt í puttunum!

ps6. bæbæ! =D hehe

ps7. mörgæsin kveður! =D

jamm ákvað að senda þetta inn.