Jæja,

Á morgun á ég að mæta kl. 8:05!! upp í Náttúrufræðistofnun Vesturlands í svona lame skoðunarferð. Jæja gaman af því, en segjum bara að ég sé með skemmtilegasta Náttúrufræðikennara(kaldhæðni) í heimi og ég elski hana útaf lífinu(meiri kaldhæðni).

En það eru svona 2 hópar sem fara fyrri og seinni og “skemmtilegasti kennari í heimi” sagði að ég ætti að fara í fyrri ferðinni. Svo ég spurði hana fallega við hana “má ég ekki fara í seinni?” En þá svaraði/Öskraði hún “NEI AXEL ÞÚ FERÐ Í FYRRI FERÐINNI!!!” svo að ég þarf að vakna fyrir kl. 8.05 á meðan sumir fá að sofa út.

Svona læti fara í taugarnar á mér! Síðan hefur hún alltaf verið að uppnefna mig og alltaf er allt mér að kenna sem að fer úrskeiðis í þessum kennslustundum. Svo að þegar hálfur veturinn var liðinn í fyrra þá bara hætti ég að læra eitt eða neitt í þessu heimska fagi. En ég vonaðist eftir að hún myndi hætta þessu núna í ár. En svona lætur helvítis beljan.

Það á að skjóta svona helvítis rollur!!!

Afsakið blótsyrði(þó svo að þau séu ekki mörg, en það eru margir t.d. “skemmtilegasti kennari í heimi” sem að taka blótsyrðum illa).