Eins og þegar ég var í 6-7. bekk þá var bekkurinn alltaf að gera eitthvað saman úti í frímínútum. VIð vorum í ‘húfuleik’. Hann gekk þannig fyrir sig að það voru stelpur á móti strákum og við áttum að reyna að ná húfum af einhverjum sem var af gagnstæðu kyni. Svo viðgegngjust húfuskipti. Þ.e.a.s. þegar að strákur tók húfu af stelpu og stelpa húfu af strák þá gátu þau skipt svo að leikurinn var aldrei búinn. EN.. heldurðu ekki að kennarinn hafi bannað þennan leik. Jú.. Og það var vegna þess að húfurnar gátu DOTTIÐ á jörðina..
Þá byrjuðum við að fara í löggu og bófa. Stelpur vs. strákar eins og endranær. EN.. kennarinn bannaði það líka. Það var vegna þess vð við gátum dottið og meitt okkur..
EIns og við getum ekki dottið í fótbolta eða á stultum eða körfu eða bara því sem að hinir krakkarnir voru að gera.
Eins og við gætum ekki misst vettlinga og húfur þótt að við værum ekki í húfuleik. Og þó að við myndum missa þær og þær óhreinkast.. Þá gætum við sett þær í þvott.
það er satt, eina ástæðan fyrir reglum er til að það se´eitthvað gaman að gera. Ef að heimurinn væri reglulaus, þá væri ekkert gaman að gera, ekkert sem er “ó ó”
Þegar að að ég var í 1.-5. bekk(2 skólar) þá gátum við gert alveg allt úti á skólalóðinni og kennurunum var alveg sama; Við fórum í leiki sem að gátu hálsbrotið okkur og kaffærðum/vorum kaffærð svo lengi að við gátum ekki einu sinni staðið upp eftir það… En svo í 6. bekk fór ég enn og aftur í nýjan skóla og þar mátti álíka jafn fátt(er í 9.bekk)…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..