Ég var að fletta í gegnum dagskránna áðan og stoppaði ég á síðustu blaðsíðunni til þess að sjá hvað væri verið að sýna í Borgarbíó þá rekst ég á mynd með einhverjum gaur með risastóra hendi og asnalegan svip á andlitinu og síðan stendur einhver stelpa við hliðina á honum sem er að spúa eldi eða einhverju álíka út úr hendinni á sér.
Síðan er mér litið á nafnið og stendur þá “The adventures of SHARKBOY LAVAGIRL 3-D” Ég fékk hláturskast og hugsaði með mér að þetta væri örugglega ein mesta sorp mynd sem hefði verið gerð.
Ég meina nafnið segir allt..

En hvernig er það hefur einhver séð þessa mynd og ef svo er, er hún þá ekki allgjört sorp?