Já, ég er í bleiku pilsi! Þetta er agalegt! Samt gaman því það er langt síðan ég hef verið í pilsi! =)
Það sem gerðist var að ég og hundurinn minn, hann/hún Depill Dúlla Jóhann Pétur Einhverssdóttir/son.. við vitum ekki alveg kynið á greyjið hundinum! =S En hvað um það, við vorum einhvað að labba og ég sast niður og fór að týna blóm og Depill Dúlla Jóhann Pétur Einhverssdóttir/son fór eitthvert í burtu. Svo stóð ég upp og tók eftir því að Depill Dúlla Jóhann Pétur var ekki nálægt þannig ég fór að leita að honum/henni. Ég labbaði aðeins af stað og stoppaði eftir smástund og kallaði á hann/hana. Það var ekki fyrr en eftir nokkrar mínútur að ég fattaði að ég stóð í einhverju blautu sökkvandi grasi að ég var að sökkva! Ég var nokkurn tíma að reyna að losna úr grasinu og þegar ég var alveg að losna kom Depill Dúlla Jóhann Pétur hlaupandi og hoppaði á mig þannig ég datt beint á rassinn. Svo þegar ég kom rennandi blaut heim voru ekki til neinar buxur þannig ég neyddist til að fara í bleikt pils!
Núna líkur frásögn minni af hrakförum dagsins! =S
We were swimming in the ocean