Hafið þið einhverntíman orðið fyrir því að þið fáið hroll við að heyra ákveðið hljóð eða koma við ákveðið efni? Þetta pirrar mig mjög, það getur að vísu verið að ég sé geðveik… en það er annað mál.

*Frauðplast… Segið mér að þið fáið hroll þegar 2 frauðplast bitar nuddast saman! Ég hata þetta meira en allt!

*Prófið svo að bíta í handklæði og segið mér svo hvort ykkur líkaði hljóðið eða fenguð hroll.

*Þegar einhver með langar neglur klórar á krítartöflu… ojj! viðurstyggilegasta hljóð í heimi!

*Að bíta í epli = hrollur. Sökum þessa borða ég ekki epli, og fæ hroll við það eitt að sjá þau úti í búð eða einfaldlega hugsa um einhvern að bíta í epli. Mér finnst epla bragð gott, en ég get ekki borðað epli! Bömmer!!!
Sama á við um vínber, en að vísu ekki jafn mikið.

Anyone? =S
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”