Nú, ég er að gera minn fyrsta NÖLDURKORK (everybody give me a clap on the back)!
Nú, ég nennti ekki að setja þennan kork á forsíðuna sökum þess hve leiðinlegir hugarar eru þar oft á sveimi, en hingað koma mun steiktari og skemmtilegri hugarar.
Ég vil kvarta sáran yfir ónefndum hugara *hóstXaracushósthósthósthóst* afsakið, það stóð eitthvað í mér…
Allaveganna, þessi ónefndi hugari er hérna nýbyrjaður, og er að segja Í HVEJU EINASTA SVARI sem hún gerir við einhverjum útskýringum eða nöldurkorkum:
,,Segir sá sem er nýbyrjaður á Huga"
Hún sagði þetta meðal annars við mig, en ég hef haft þann heiður að eyða dýrmætum tíma mínum á þessari yndislegu vefsíðu í yfir ár, og einnig sagði hún það við aðra hugara, sem ég man ekki hverjir eru. Ég vil bara spyrja ykku eftirfarandi: Hvað er málið? Getur þessi ónefndi hugari ekki einfaldlega sætt sig við það að við erum eldri, vitrari og einfaldega betri hugarar? Ég vil segja stórt HNUSS útaf gjörðum þessa ónefnda hugara, en ég vona að hún reyni að skilja að ekki allir hérna voru að byrja í gær. Punktur.
Dance, my puppets! Dance! *Insert creepy-beyond-believe laughter here*