Hérna á eftir ætla ég að skrifa handa ykkur eitt stykki smásögu. Þið eigið eftir að verða hissa, hún verður svo góð. Hún verður svo fyndin að sjálfur Bush Bandaríkjaforseti myndi gefa alla olíuna í Austurlöndum til að eignast hana.

Og þegar hann væri búinn að eignast hana myndi hann gefa hana út í þúsund eintökum og selja þau til að fá alla olíuna í Austurlöndum til baka. Og þá yrði hann sko glaður. Þannig mun þessi saga bæði taka alla olíuna í Austurlöndum af Bush og gefa honum hana síðan aftur.

Þá er kannski kominn tími til að fara að byrja þessa sögu. En fyrst ætla ég að benda þér á að hún er alveg óskaplega fyndin. Var ég búin að segja þér að Bush myndi gefa alla olíuna í Austurlöndum fyrir hana? Já? Jæja. Hér kemur þá sagan.