Ég var hjá augnlækni áðan en ég er viss um að hann hafi ekki verið augnlæknir í alvörunni, heldur geimvera. Hann var í myrkri og það er vísindalega sannað að geimverur þoli illa jarðljós. Síðan beindi hann einhverju tæki að andlitinu á mér sem heyrðist bíb í. Hann setti eitthvað framan í mig svo ég sá allt í einu skírar og hann lýsti með virkilega sterku ljósi í augun á mér.

Þá áttaði ég mig á því. Geimverurnar ætla að blinda alla jarðarbúa með því að draga sólina nær. Þegar allir hafa fengið ofbirtu í augun og halda fyrir þau ætla þeir að sprengja jörðina í KLESSU!!!