Það gerðist svolítið MJÖG fyndið um daginn !!!
Það var þannig að í hádegishléinu fórum við nokkrir strákar að hól sem er við hliðina á skólanum, þetta er nokkuð brattur og stór hóll og hvað fundum við rétt hjá annað en hurð, stóra hurð sem að við bárum upp á hólinn og sátumst 3 strákar á hana (Ég, André og Mikael), ég tek það á framfæri að það er eiginelga enginn snjór þar sem við renndum okkur hledur bara klaki og svo komu einhverjir aðrir og ýttu okkur af fullum krafti og þú getur ekki ímyndað þér hvað þessi sleypa hurð fór ÓGEÐSLEGA hratt niður ísinn og það hratt að við þutum niður allan hólinn og áfram eftir jafnsléttunni, áfram að götunni, yfir götuna og þutum af fullum hraða inní runna :(.
Núna er ég og hinir gaurarnir með hræðilegasta verk í rassinum sem hægt er að fá og trúðu mér ef ég held ekki að fjandans hurðin hafi farið uppí 70 kílómetra hraða enda smallaðist hún í marga bita þegar hún skelltist inní runnann og við höfum aldrei verið jafn hræddir og á niðurleiðinni!!!
Og gettu hvað, núna erum við að undirbúa okkur til að gera þetta aftur og taka þetta upp í bíómyndina okkar sem þú getur lesið um að ofan!!
ERUM VIÐ EKKI HEIMSKIR??????