Jæja þá þú þarft ekki að segja mér fleira, sagði fógetinn og Kalli setti töskurnar á bak sitt og hoppaði upp á hestinn sinn Kela og Keli rölti af stað.
Ég syng hér einn……. Og út hér ég bíð! Eftir þjófættum þjófi…. Eða ehh var það þjósnigluðum þjófi? Æ, sagði Kalli kúreki, maður man ekkert þegar maður vill muna! En þjófurinn er hér einhverstaðar ég finn það!
HAHAHA, hann verður hræddur við mig þjófsnauturinn sá, en hvað ef……… hann nær mér fyrst, sagði Kalli kúreki og hugsaði um það í smá stund og þá hrópaði hann: Hjálp!!!!!!!!!!!!!!!! Og það leið yfir Kalla kúreka en Keli hélt áfram og tók ekki eftir neinu. Þegar Keli var kominn að þorpi var Kalli kúreki að ranka við sér og spurði: Hvar erum við? Var mér að dreyma og sit ég og fæ mér blund, sagði Kalli kúreki með lokuð augu (mjög glaður á svip) svo opnaði hann augunn og það heyrðist hátt í honum: AHHHH!!!!! Var þetta ekki draumur?!, hann var komin í eitthvað þorp og horfði skringilega í kringum sig og sagði: í hvaða klípu er ég núna í?

Framhald kemur seinna
he's very sexy