Ég á litla sæta vinkonu sem skal haldast nafnlaus en hún er það sem maður kallar LJÓSKA í felúbúningi….. ég vona að hún lesi etta ekki ;)
dæmi um það er þegar þessi unga dama var á ferðalagi um bandaríkin með foreldrum sínum. Þetta hafði verið langur og erfiður dagur og hún var orðin ansi þreytt og dálítið pirruð. Hún steig upp í strætisvagn með foreldrum sínum og þau byrjuðu að spjalla um daginn og veginn. Pabbi hennar byrjaði að spurja hvort tónleikarnir sem þau áttu að fara á um kvöldið væru ekki örugglega klukkan sjö. vinkona mín leit á pabba sinn og segði nei ég held að það hafi verið klukkan sex. Nei það var klukkan sjö byrjaði pabbi hennar en hún stöðvaði hann með því að segja að það væri klukkan sex og svona hélt það áfram um nokkra stund þangað til hún var orði reglulaga pirrðu og byrjaði að öskra NEI SEX SEX SEX SEX….
……….hún var í BANDARÍKJUNUM