Posi er köttur,
Einu sinni kviknaði í Posa, þá var best að henda honum í sundlaug.
Posi segir aldrei satt ! Hann kann ekki að tala. Einu sinni rakaði
ég Posa sköllóttann. Posi étur ekki kattamat, bara kjúkling.Ég
lem Posa þegar hann er að pirra mig, núna veit hann að það er
bara matur seinnipart dags og leiktími er á mánudögum,
fimmtudögum og sunnudögum, hann má fara út á milli 14:00 og 18:00
þegar ég er heima og klappi tími er um helgar (þ.e. lau. og sun.
ekki fös.). Posi kemur stundum með mér í sumarbústað, þá fær hann
að drekka rjóma ef hann er góður í bílnum á leiðinni. Posi er með
fallegann feld og þessvegna má hann ekki vera hjá ókunnugu fólki.
Posi verður 5 ára þann 4. Júli klukkan 15:00 og við vonum að hann
lifi í mörg skemmtileg ár í viðbót.