Ég var um daginn í strætó(140) og bílstjórinn var að gá aftur fyrir sig og tók ekki eftir veginum, þegar hann lítur við (á veginn) sér hann að bíll er stop beint fyrir framann hann og hann bremsar svo harkalega að allir í strætónum þurftu að grípa í eitthvað.
En asnin ég sat á ská og var að tala við vinkonu mína og tók ekki eftir fyrr en ég var kominn á gólfið og bílstjórinn spurði mig “er allt í lagi???!!!, mér brá ekkert smá og stóð upp eins og ekkert hafi gerst og setist aftur í sætið mitt.
eftir smá stund var mér svo illt í vitlausa beinninnu og fann að ég væri farinn að bólgna í hendini.vinnkona mín spurði mig stöðugt
”er allt í lagi,er allt í lagi“ ég sagði bara að mér væri illt í hendinni.
þegar ég skoðaði sætið fyrir framan mig er járn (sem maður getur haldið í)sem er fast við sætið, ég hugsaði ”vá, eingin furða að mér er illt í hendinni.
svo eftir tvo daga er ég kominn með þennan flotta marblett á olnbogann skreittur með gulum, grænum, fjólubláum, bláum og rauðum litum.