Letidýr tilheyra tveimur ættum spendýra, Bradypodidae (þrítæða letidýr) og Megalonychidae (tvítæða letidýr). Þessi dýr finnast einungis í Suður- og Mið-Ameríku. Upphaflega voru öll letidýr sett í fyrrnefndu ættina en nú er greint á milli þeirra tveggja, útfrá táafjölda og öðrum atriðum, til dæmis fjölda hálsliða.

Brúna letidýrið (Bradypus variegatus) er útbreiddast en það finnst í skógum Mið-Ameríku og á stærsta hluta Amazon-svæðisins. Ljósa letidýrið (Bradypus tridactylus) lifir á svæði í norðausturhluta Suður-Ameríku, og þriðja tegundin, sú sem hefur minnsta útbreiðslu, er makkaletidýrið ( Bradypus torquatus) sem lifir í skógum við Atlantshafsströnd Brasilíu.

Kv. Ari