Nú ætla ég að segja frá hvað Windows er magnað stýrikerfi.

Áðan var árshátíð í skólanum mínum.
10. bekkur (minn bekkur) var með magnað atriði sem var gert í tölvu. Ég hafði setið með sveittan skallann langt frameftir kvöldum við að búa þetta til og gera hljóð-effecta fyrir þetta stórvirki.
Við ætluðum að varpa þessu á vegginn beint úr tölvunni og þegar öll þessi vinna og undirbúningur átti að skila sér gerðist soltið magnað!

Það byrjaði með því að það hafði auto-slökknað á djöfulsins tölvunni. Ég þurfti að kveikja á henni, logga mig inn (sem tekur korter) og opna djöfulsins forritið.
Þegar ég ætlaði að opna forritið kom blue-screen á vegginn í staðin fyrir afrakstur margra daga vinnu.
Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta.
Við þurftum að hætta við atriðið af því að það var búið að taka of mikinn tíma.

ÉG HATA WINDOWS!!!!!
we got motherfucking