Nú eru framleiðendur að “gjörbylta”sjálfsala heiminum eins og þeir segja. Því núna ætla þeir að fara að þróa sjálfsala sem þú getur látið eiga afganginn, þú segir einfaldlega,“keep the change”!!! Ekki má þó búast við þessu á næstunni, því að það tekur alveg óralangann tíma að programma svona tryllitæki, og ekki er einu sinni víst að það verði hægt.

Þeir sögðu í viðtali á miðvikudag(19. feb) að þeir hafi verið lengi að hugsa sig um hvað þeir ættu að gera nýtt þannig að drykkurinn seldist betur, ef það er hægt að láta leigubílstjóra eiga afganginn af hverju ekki sjálfsala? Þeir sögðust oft hafa lent í því að vera á hraðferð og hafa viljað láta sjálfssalan bara eiga afganginn!

Hversu heimskulegt er þetta, og eru þeir að gera þetta upp á þægindin eða til þess að græða meiri pening? Allavega er þetta gjörbylting