81 árs kona í hjólastól var handtekin á dögunum á alþjóðaflugvellinum í Miami á Flórída. Konan var tekin í tollinum þegar að tollverðir sáu móta fyrir pillupokum í handfarangri hennar. Í ljós kom að þessi eldgamla kona var með tæplega 10.000 ecstasy töflur í töskunni sinni, faldar innan um bækur og blöð. Konan var ekki ein á ferð, með henni var 56 ára gamall kærasti hennar. Við yfirheyrslur sagðist konan alltaf hafa staðið í þeirri trú að um Viagra töflur væri að ræða.
Það er margt skrýtið sem að kemur upp í hugann þegar maður heyrir svona fréttir. Í fyrsta lagi er svoldið skrýtið til þess að hugsa að 56 ára gamall karlmaður eigi 81 árs gamla kærustu í hjólastól ( ætli það hafi verið ást við fyrstu sýn ). Í öðru lagi er hræðilegt til þess að hugsa að konan hafi haldið að þetta væru Viagra töflur, það segir sitt um kynlíf þessa pars.
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum !