frá mbl.is

Réttlát refsin


Ung írönsk kona, sem er meistari í júdó, handleggsbraut móður kærastans síns eftir að hún neitaði að leyfa hjónaleysunum að giftast.


„Ég sló hana svo fast að ég handleggsbraut hana. Konan svipti mig bestu árum ævi minnar og átti refsingu skilið," hafði blaðið Etemad eftir Narguesse, sem er 28 ára gömul.


Blaðið sagði að kærasti hennar, sem nefndur er Hamid, hefði undanfarin 12 ár lofað Narguesse því að þau myndu brátt giftast. En Narguesse hafi loks misst þolinmæðina eftir að hafa þolað móðganir og skammir væntanlegrar tengdamóður sinnar um árabil.

hvernig getur fól verið svona fúlt