„Fuck…Bara þótt að það væri enginn hér í kring..Sem hún sæi..Þá þíddi það ekki að það gæti ekki verið neinn inni í búðinni“ n00binn greip haglarann sem var við hliðina á framsætinu „…sannarlega undarleg tilviljun“ hugsaði hún með sér og labbaði í áttinni að búðinni. Hún heyrði kvalarstunur og æluhljóð undan sér, Hún labbaði í áttina að hljóðinu og sá unga stelpu liggja í ógeðfelldri blöndu af ælu og blóði. Hún vissi ekki alveg hvað væri í gangi en hún vissi að fólk var að veikjast, deyja og koma aftur og það var að dreifast, hratt. Þetta hafði fyrst komið í fréttirnar í dag. Á fm 957. Einu stöðinni sem virtist en vera uppi. Þetta hafði greinilega byrjað fyrir nokkru
Hún flýtti sér burt frá stelpunni sem var hætt að hreyfa sig..en andaði enn og flýtti sér inn í búðina.
„Yo bro!“ kallaði Svarti til hennar þar sem hann sat og var að japla á langloku „afgreiðslukellingin var e-h veik og fór bara…svo frítt stuff marr!“
Ó guði sé lof hugsaði hún með sér, Þau voru greinilega ekki beint þau björtustu en þau voru úti, Ólíkt öðrum og hún þurfti á þeim að halda, Þar sem að hún gat ekki farið heim
„Frítt stuff segiru?“
„Já marr, Almighty og Mogwaii fóru að leita að klámi þarna á bakvið
„SvartiSauðurinn er það ekki?“
„Júh“
„Seg mér…Hefuru einhverja hugmynd um það hvað er í gangi“
„ööö…frítt stuff! Dojjjj“
„Nei ég meina þarna úti“
„Þetta er ekki um býflugurnar og blómið er það? Oh ég vissi að þessi dagur myndi koma“
„Nei sauður, Ég er að tala um fólkið, hefurðu ekki tekið eftir neinu undarlegu?“
„Tjaa…Fjólublátt er komið í tísku..helvítis fjólublár(*) já og er ekki einhver pest að ganga? Allavega ældi konan nógu hressilega yfir banjóið mitt áðan..Rétti mér svo símann sinn og sagði mér að hringja í læk og ældi svo meira…ég þekki engan læk!“
„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að segja þetta..“
„Prufaðu að nota munninn..virkar yfirleitt hjá mér“
„Þú veist þarna „Gyðingurinn“ sem þið keyrðuð yfir“
„Já?“
„Hann var í raun einhvers konar uppvakningur held ég“
„uppvakningur?“
„Já“
„Svona án gríns?“
„Já því miður“
„HEY MOGWAII!“
„HVAГ hrópaði mogwaii til baka innan úr lagernum
„UPPVAKNINGAR MARR!“
„UPPVAKNINGAR?!?!“
„TÓTALLÝ MARR!“
„LJÚÚÚÚÚFT!“
„HVER SAGÐEITTHVAÐ UM UPPVAKNINGA?“ Hrópaði AlmightySæunn
„N00BINN!“
Mogwaii og Sæunn komu af lagernum
Mogwaii hljóp að svartasauðnum og þeir stukku í hringi fagnandi, eins og litlar skólastelpur
„Uppvakningar segirðu?“ Sagði sæunn
„Já..Það kom einn inná barinn minn í gær og sýkti allmarga þar inni“
„Hvernig geturu verið viss um þetta?“
„Í fyrsta lagi reyndi eitt krípið að bíta mig, í öðru lagi þá sá ég einn gæða sér á unglingsstrák þegar ég var að labba heim í gær“
„STRÁKAR! HALDIÐ KJAFTI“
Strákarnir þögnuðu ekki og byrjuðu að hlaupa um gangana í gleði sinni
„Afhverju eru þeir svona kátir?“ spurði n00binn hissa
„Ertu ekki að grínast? Þeir eru búnir að spila lélega tölvuleiki, horfandi á heimskulegar myndir og lesandi illa soðnar bækur síðan þeir voru litlir og eru búnir að bíða alla sína ævi eftir svona tækifæri“
„….þeir eru ekki svona „All there“ er það“
„Harla“


*Innskot frá rithöfundi. Rithöfundur er litblindur og neitar að trúa því að fjólublár sé í raun til
Ekki það að ég viti neitt um það