Byrjunartexti: ;*******

Vörðurinn gengur hægum skrefum að meginhliðinu, stór nashyrningur með vélbyssu í hendi sinni, hann stoppar í smástund og kveikir í sígarettu og dregur hana að munni sínum. THT starir á hann í myrkri, ,,Reykingar eru vondar fyrir heilsu yðar.“ segir hann á meðan hann sker af honum eyrað. ,,NEI! EINI VEIKLEIKI MINN!” öskrar nashyrningurinn og fellur svo niður í fósturstellingu. Lobsterman skokkar framhjá og teygir sig.

,,'The fuck ertu að gera, humar?“ spyr Grjónagrautur.
,,Þú'st, pílates.” segir Lobsterman á meðan hann /flexar.


SinSin vafði pappírinn í fléttu og kveikti, hann glotti til smokksins sem stóð í horninu, en þetta var enginn venjulegur smokkur, heldur 160 cm smokkur með hendur og fóta.
,,'Dehm bunnies… Maaan…“ andvarpar Smokkurinn,
,,Þegiðu, CondoM,” segir SinSin á meðan hann dregur inn reykinn.
Bylgjandi sprenging heyrist þegar hliðið springur upp, Snjói hoppar út og lendir á hnjánum og dritar niður nokkra nashyrninga, á meðan THT sker niður restina með geislasverð sínu. Lobsterman hoppar í þrefalt heljarstökk og býr til ís fyrir Grjónagraut, sem er að planta dýnamíti á fangaklefann.
,,Skrýtinn uppsetning hjá okkur,“ segir Grjonagrautur á meðan hann rennur sér undir feitu mörgæsina (btw, það var feit mörgæs), SinSin hleypur út, dettur nokkru sinnum.

,,Þú'st. Við erum bara öll ein samviska saman skilur þú mig? Aðeins ein og… Þú'st… Lífið er aðeins draumur og… Það er ekkert sem heitir dauðinn… Því að… Ég er FÁRANLEGA STONED.” segir SinSin.
,,M'keey…“ segir CondoM.
,,Tökum við dvergasmokkinn með?” spyr THT.
,,Sjur, þetta verður lukkudýrið okkar!“ segir Snjói ánægður.

Afi Cubus hættir um tímabil. ,,Leðtu meiða aþi Kjúbuð!” segir MissShy. ,,Já afi, drífðu þig, ég er að fara á heitt date,“ segir n00bin. Cubus hrekkur upp, hann setur gleraugun á sig, og byrjar aftur að tala. ,,Hvar var ég, já, að sjálfsögðu,”

Grjónagrautur og THT hlupu áfram á meðan Losterman hoppaði með SinSin á bakinu í heljarstökk á þökum á meðan Snjói og CondoM voru í alvarlegum umræðum um að bananar eða kýr væru heilagar.

Loksins koma þau að Snjóflugvélinni hans Grjónagrauts og drífa sig inn.

,,Farinn á klós'tið!“ segir CondoM.
,,Jæja, hvar er Lily2?” spyr THT SinSin.
,,Lily… 2?“ segir SinSin, hissa.
,,Þú veist, tölvuhakkari?” segir Snjói, er hann opnar einn íííííískaldan.
,,Jánei, hún bjó í… Hippakommúnu og var að predika um kjarnorkuknúna hringi, þú ert að tala um joslaf, hún er í heróínbæli í Mörgæsaríki.“

,,Jæja, TIL MÖRGÆSARÍKIS!” öskrar Lobsterman.