Byrjunartexti; Mávur sem gengur inn í búð er virkilega geimvera. - Móses.

Maður með sítt hvítt skegg með stór kringlótt gleraugu situr í köflóttum stól, þrír krakkar sitja í indjánastellingum í kringum stólinn. Einn af krökkunum togar í buxurnar á manninum ,,Avvi Kjúbus, getuððu þagt okður þögu?“ spyr Shy. ,,Auðvitað, Miss Shy mín.” segir maðurinn er hann lyftir barninu upp á lærið sitt. ,,Viljið þið heyra um ævintýri Lobstermans til Jólasveinsins?“ spyr afi Cubus. ,,Jólasveininn er ekki til, afi…” segir Mogwaii, hlédrægur. “Óh, en hlustaðu nú, minn kæri, á jólasögu mína.” glottir gamli karlinn. ,,Já, þegiðu Mogwaii,“ andvarpar n00bin. Cubus kinkar kolli og bendir krökkunum til að þagna.

,,Lobsterman var ungur maður frá humraríki Stefáns,*Myndavélin færist í myrkt verkstæði, þar sem geðveikur kínverji er að slá Lobsterman með svipu*,,HRAÐAR! HEIMSKI HUMAR! HRAÐAR!” öskrar Asíubúinn meðan hann slær harkalega á bakið hans Lobstermans. Allt í einu kemur mjór samúraji með geislasverð og drepur asíubúann, ,,Lobsterman?“ spyr hann.
,,Errh, já?” svarar Lobsterman.
,,Fylgdu mér!“ orgar Samúrajinn meðan hann hleypur í gegnum verkstæðið, byggingin er viðbætt ofan á Næturklúbb. Samúrajinn hoppar út á megin þakið og Lobsterman á eftir. Fyrir neðan sjá þeir snjókall.
,,Drífa sig nú!” öskrar snjókallinn.
Samúrajinn bendir Lobsterman að hoppa niður.
Lobsterman hristir höfuðið og hoppar niður í djúpa snjóinn, hann sekkur um leið og festist.


Lobsterman vaknar í jarðaholu, djúpt undir Mt. Roosevelt.
,,'Thefuck?“ andvarpar Lobsterman.
,,Ég er SvartiSauðurinn, einnig kallaður Snjói.” segir snjókallinn, meðan hann blikkar.
,,Ég er Tobbi “Hattur” Tankur. Einnig kallaður, “THT” “ segir samúrajinn.
,,Og hvað í andskotanum er ég að gera hérna?” spyr hann Lobsterman.
,,Æææ, þú'st bara á tjillinu, beip.“ segir Snjói.
,,Errh. Nei, við erum top síkret aðdáendaklúbbur Jólasveinana. Geðveikir Gorky-alíbanar rændu Ketkróki…”
,,Og við þurfum þína einstöku humrahæfileika þína.“ botnar Snjói.
,,Við þurfum samt fleiri, komdu með mér inn á skrifstofu.” segir THT.


Lobsterman fylgir THT inn á fallega skreytta skrifstofu, kannabis-plöntur og LSD liggja þvers og kuss. ,, … Snjói…“ útskýrir THT. Lobsterman kinkar kolli.
THT leitar í stórum kassa. ,,Fann þær.” segir THT meðan hann kastar myndum á borðið.
Á þeirri fyrstu stendur maður með stóra hríðskotabyssu á bakinu og haglabyssu´í hendinni. ,,Þetta, er skæruliðinn SinSin, hann verður planari okkar, hann er reyndur í “guerilla warfare”.“ segir THT.
Á annarri myndinni stendur mjó kona með gleraugu og stóra tölvu í hendinni sinni, hún glottir pínu og er með stóran dverg á bakinu sínu. ,,Þetta, er Lily2, besti tölvuhakkari í heimi, hún mun skaffa upplýsingar fyrir okkur.” segir Snjói, en hann læddist inn í herbergið.
Á þriðju myndinni stendur sterkbyggður maður í bláum spandex samfestingi.
,,Þetta, er lolzor, hann er besti leikfimsmaður í heimi, betri en Íþróttarálfurinn.“ segir THT… ,,Og þú, ert galdrakallinn okkar.”
,,Ég kann bara að búa til ís.“ segir Lobsterman, leiður.
,,Skiptir engu.” segir Snjói, ,,Förum nú að sofa"

Lobsterman hlammar sér í rúmið, Snjói breakdansar við Mozard á meðan THT burstar tennurnar á hundinum sínum.