Leitin að hinum heilaga gral. Kafli 7 YAY! Ég get kallað n00bann n00bann aftur!

MessrsMoony, n00binn, Svarti Sauðurinn, lobsterman og Rainbow höfðu gengið í nokkra klukkutíma þegar þau sáu lágvaxna dökkhærða stelpu sem kom hlaupandi að þeim öskrandi “AAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!!”
“What…the…fuck…” sagði Svarti Sauðurinn.
Þegar hún var komin í u.þ.b. 1,367205823 km fjarlægð hætti hún þó að öskra en byrjaði aftur þegar hún var komin pí metrum lengra. Þegar hún var komin að hópnum rakst hún á n00bann sem var að ljúka við að snæða kleinuna sína.
“Róleg!” sagði n00binn, “af hverju ertu annars að öskra?”
“AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHHHHHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!”
hrópaði stelpan þá.
“Eh, habla íslenska?”
“Sorrý, það kom ninja aftan að mér og sprautaði hreinsiefni framan í mig. Síðan hljóp hann í burtu, sem betur fer fyrir hann því annars hefði ég kýlt hann alla leið til Indlands.”
“Ég held að það sé eðlisfræðilega ómögulegt að kýla einhvern 8420 km.” sagði Svarti Sauðurinn þá.
“Viltu láta reyna á það?” spurði stelpan.
“Neinei, ég er góður, hvert sagðirðu annars að ninjan hefði hlaupið?”
“Ég sagði það ekki.” svaraði hún.
“…og geturðu þá sagt okkur hvert ninjan fór?”
“Já.”
“Og hvert fór hún?”
“Mér sýndist hún fara rakleiðis til Ísafjarðar.”
“Fokk, hún veit pottþétt að Batguy er með gralinn og er að reyna að ná til hans á undan okkur.” sagði Rainbow
MessrsMoony, n00binn, Svarti Sauðurinn, lobsterman og Rainbow litu öll á ókunnugu stelpuna.
“psstpssstssptstptssstpspstppssssspts” hvísluðu þau öll á sama tíma.
“OK,” sagði lobsterman, “við höfum ákveðið að taka þig með okkur þar sem við getum ekki tekið áhættuna á að hnakkarnir taki þig til fanga og neyði þig til að segja frá þessu.”
“Dudes, það er ekki að fara að gerast.” svaraði hún. “Í fyrsta lagi veit ég ekki hver þið eruð og hvað þið heitið og í öðru lagi er ég með ofnæmi fyrir kringlum.”
“Alveg rétt! Við erum á vegum uppreisnarhreyfingarinnar Svarthols. Nafn mitt er lobsterman og þetta er Svarti Sauðurinn og þarna er Moony. Þarna er Rainbow og sú sem er að borða kleinuna er n00binn. Auk þess þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur því ekkert okkar borðar kringlur. Við borðum bara kleinur. En hver ert þú?”
“Ég er NANANA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!”
“Ha?”
“Nafn mitt er NANANA!!!!!!!!!!!!!!!”
“Heitirðu Nanana?”
“Nei, NANANA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!”
“Með upphrópunarmerkjunum?”
“Nei, ill norn lagði á mig álög þannig að alltaf þegar ég segi nafnið mitt wordfilterast það yfir í NANANA!!!!!!!!!!!!!!”
“Riiiiiiiiiiight, en kemurðu þá með?”
“Sure, af hverju ekki?”
Og þar með lögðu MessrsMoony, n00binn, Svarti Sauðurinn, lobsterman, Rainbow og NANANA af stað til Ísafjarðar.