Osom Eftirfarandi eru sögur af Einræðisherra, syni Jóns Páls og Chuck Norris, pabbi Leníns og Seifs en þá átti hann með Nicole Graves og Jessicu Alba er hann tók þær með sér í frí í fortíðina.

Eitt sinn var Einræðisherra á gangi í Afríku. Hann hafði með sér byssu nokkra er var fimmtíu ml og skaut átján skotum á mínútu. Eftir nokkurra metra göngu stökk fram risastórt ljón og öskraði: ,,RRRREEEEAAAAAAAAAARRRRRRRGGGGGGGGGG *Hóst, Hóst*JJJJJJEEEEEEEEEEEAAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGGGGG!!!´´ Ljónið reyndi að slá Einræðisherra en hann vatt sér undan og hleypti af, en byssan hafði verið keypt í Tæknibæ og fkn virkaði ekki. Einræðisherra brá þá á það ráð að henda berja ljónið með byssunni, en leo beit hana í tvennt. Nú var Einræðisherra króaður af milli kletts og og stórs kattardýrs að nafni Panthera leo. Simbi litli opnaði ginið upp á gátt og bjó sig undir að gleypa Einræðisherra í heilu lagi, en herrann eini sem ræður teygði höndina í flýti inn um gin Múfasa , framhjá lifrinni og alla leið inn í skottið, tók sér þar gott grip og dró hendina eins fast að sér og hann gat svo að það sem á ljóninu átti að standa út var inni og það sem inni átti að vera sást nú berum augum.

Einræðisherra var eitt sinn á gangi með hund sinn Kerberos þegar hann mætti Kölska. Einræðisherra var frændi Kölska og ákvað að taka með honum létt spjall. Eftir nokkrar mínútur sagði Kölski að amma Einræðisherra, Jesú Kristur, væri aumingi. Einræðisherra reiddist en ákvað að nota aðra aðferð til þess að hefna sín.
,,Heyrðu mig nú,‘‘ sagði Herrann. ,,Ég heyrði að þú gætir gert þig alveg bara rosalega lítinn eða eitthvað,‘‘ Því jánkaði Kölski og minnkaði sig í stærð tölvumúsar. Einræðisherra dró fram holan sauðalegg og sagði: ,,En ég held að þú gætir nú ekki passað hérna inni!‘‘ Kölski gerði sér lítið fyrir og fór inn í sauðalegginn. Herrann dreif sig í að setja tappa í gatið (that‘s what she said) og henda leggnum ofan í sjó.

Osomasti Einræðisherra í heimi
hann væri oft á sveimi
í borginni þar sem ég bý
bara ef hann nennti því.

Hann skeytir ekkert um aðra
nennir aldrei að skipa fyrir og daðra
ekki neitt upp að drepa
og aldrei að bíta eða sepa(vantaði rím)

Hann þarf engan að elta
kann ekki heldur að gelta
engan veginn að urra
kannski einstaka sinnum að murra.

Það er kannski ekki til hins verra
að hann skuli nenna að vera einræðisherra.

Ef að Einræðisherra er seinn, þá byrjar tíminn að hægja á sér.
Einræðisherra sló eitt sinn hraðamet á landi með reiðhjóli sem hafði enga keðju og ekkert afturdekk.
Einræðisherra hefur ávallt kveikit á ljósinu áður en hann fer að sofa. En það er ekki út af því að hann er hræddur við myrkrið, heldur af því að myrkrið er hrætt við hann.
Þegar kvenmenn stunda kynlíf með guði öskra þær: ,,EINRÆÐISHERRA!‘‘
Manstu eftir því þegar þú pissaðir nafnið þitt í snjó? Ég man þegar ég pissaði nafnið mitt í demant…
Ástæðan fyrir því að geimverur hafa ekki enn ráðist á Jörðina er sú að þær eru að bíða eftir því að Einræðisherra deyi (ain‘t gonna happen the next millennina).
Ef að þú vilt lista yfir óvini Einræðisherra skaltu bara líta á listann yfir útdauðar tegundir.
Ef að Einræðisherra notaði smokk væri það skröltormur. Því miður eru ekki til svo stórir skröltormar.
Afhverju er Valli alltaf í felum? Einræðisherra.
Það eina sem getur sigrað Royal Flush er Einræðisherra.
Einræðisherra getur skellt snúningshurð.
Sko, fatlaðra stæðið stendur ekki fyrir það að fatlaðir einir megi leggja þar. Það stendur fyrir að Einræðisherra eigi stæðið og að þú verðir fatlaður ef þú leggur þarna.