Þankabrot Hey man! Nobody fucks with the Jesus…

Já halló! Ætlaði að athuga hvort það myndi verða góð grein ef ég myndi skrifa beint upp það sem ég er að hugsa.

Ætli KFC kallinn hafi reynt að nauðga mér…..Það var allavega einhver kall með svona staf og í svona KFC fötum, jakka-eitthvað……Ætli það sé til maður sem heitir Pálína? Thank god að ég heiti ekki Pálína….Ef ég héti Pálína, þá myndi ég þurfa að…veit ekki…….Afhverju er smokkfiskurinn svona furðulegur, og hvaða gat er þetta á honum?
Ekki missa snúruna fíflið þitt!
Fótsnyrting…Er það ekki þar sem maður setur nálar á milli tánna og biður til Gúblom, guð sápuvatns? Hvað í jævelhevlíðitinu þýðir Nam-Yo-Renge-kyo? Eitthvað tengt wok-pönnum væntanlega……Hvað ætli wok þýði? Nenni ekki að pæla í því…..Hvað ætli Strumparnir séu margir? Hmm….Sóða-Strumpur, Hégóma-Strumpur, Gáfna-Strumpur, Æðsti-Strumpur….bíddu, hef ég ekki talið þetta upp áður?
Hmm…
Afhverju ætli borðunum upp í skóla hafi verið snúið á hlið? Örugglega til þess að spotta geimverur betur….Úff, vona að stelpan sem er aldrei að fara neitt komi ekki með haglabyssu í skólann á morgun og drepi mig…Serves me well, though……Ætli Óli hönd láti hengja Samma fyrir að kasta skyrinu?
Ætli Jesús hafi borðað skyr á krossinum?
Mig langar í skyr…..Hvað er maður lengi að kreista jarðarberja-skyr.is úr einni belju, 5 mín? 10 mín?
NEI! Þetta er ekkert djók, og ÉG ER YFIRMAÐUR HÉR!
Hvernig ætli það væri að sjá ekki tærnar fyrir bumbu?
Djöfull myndi ég panikka…..Gylfi, rosalega er það sniðugt nafn, Gylfi……og……og Styrkár….og…..umm…..Ísidór…..Það væri æðislegt að heita Sigmundur Ólínamundur Zóphonías Skarphéðinsson Mach III…….Samt ekki…..Biblía? Já takk!
Ætli Vottar Jehóva séu bara að þessu 4 teh lulz? Banka upp á hjá manni, háir á grasi og segja að Jesús sé fastur í kattarlúgunni þinni…..
Andskotinn, Terminator þættir? Það er eitthvað nýtt!

Já, 10 mínútur úr mínum degi þegar ég hef ekkert að gera og sit uppi í hægindastól með fartölvuna.


Hellscream, BKI
Kakóþeytir