Vitleysa af handahófi Jæja, góða kvöldið.

Hefurðu einhverntímann þurft að hnerra á meðan þú pissar?
Hefurðu einhverntímann hnerrað í morgunkornið þitt?
Hefurðu einhverntímann hnerrað á meðan þú ert að drekka mjólk?

Maður sér aldrei Margaret Thatcher að setja á sig dildó.
Maður sér aldrei stóran, feitan og rauðhærðan kínverja.
Maður sér aldrei gamalt fólk að stela mjólkursykri.


En jæja, ég elska að segja: Sulta, pulla, snúra, bolli, kassabílarallý, túba, trompet, lúður, möppuskrímsli, pilla, púði, regnkápa, jólasveinninn, Grýla, bjalla, beddi, Leppalúði og margt fleira…

En einu sinni var ég úti að labba þegar rosa stór Guðmundur kom fljúgandi og borðaði skóreimarnar mínar.
Þá sagði ég: Hey, skilaðu þeim eða ég stíg á mjólkursykurinn.
Þá settist hann niður og fékk sér ídýfu.
En þá kom fullt af reiðum jólasveinum og sögðu: Skreið til Nígeríu.
Þá hljóp ég heim og faldi mig ofan á koddanum mínum.


En já….

Allir krakkarnir tóku prófið, nema Andri.
Allir krakkarnir fóru í Hvalfjarðargöngin…nema Teitur, hann var of feitur.

En já….

JesúsPéturKiljanoghinheilagajómfrú

Ég er ekki að stigahórast….ég er bara vitleysingur sem verð að fá útrás fyrir vitleysu af og til.

Einu sinni voru tveir Guðmundar að labba á Rúnari……

Raksápupáskar

Halldór Blöndal bátar

Ef ég væri orðin lítil kleina,
ég inn um gluggan þeytti flugið mitt.
Og eitthvað, eitthvað, eitthvað,
ég eflaust gæti kitlað eyrað þitt.

Ef ég gæti flogið, þá myndi ég nota það til að stavsettningavyllast.

Það var einu sinni maður sem fór á hótelherbergi og sá að það var enginn leslampi, svo hann fó´r niður í afgreiðsluna og maðurinn í móttökunni segir: Get ég aðstoðað?
Þá segir maðurinn: já, má ég fá lampa?





0 gráður
Grikkir klæða sig í kuldagalla.
Íslendingar deyja í hitabylgju.

-10 gráður
Spánverjar kvarta undan kulda.
íslendingar fara í Nauthólsvíkina.

-20 gráður
Þýskir krakkar byggja snjóhús.
íslendingar skella sér út að grilla.

-50 gráður
Ólíft er í Rússlandi vegna kulda.
Íslendingar fara að klæða sig í síðar buxur aftur.

-100 gráður
Grikkir deyja út.
Íslendingar slá garðinn.

Helvíti frýs.
Ísland vinnur í Eurovision.




En já….


Ætla að fara að sofa elsku litlu sykurpúðasúkkulaðirjómaafmæliskökurúsínupoppkexsúkkulaðifrauðin mín……

Góða nótt,

Hellscream, BKI
Kakóþeytir