Þetta mun verða mitt meistaraverk, því get ég lofað!…. Anywho….Sagan mín! Enjoy!


Ég sit hérna með landanum mínum og þamba hratt.
Hún og landinn hennar!

Þú hlýtur nú að vera að grínast á þessu sulli í þér Honeybug!?
Verður þér ekkert illt í maganum?

*Honeybug situr og þambar landa*

“Nehei, ég er þrælvön þessu, sem og banana átinu!” svarar þessi eltihrellir glaður í bragði!

Já, kæru hugarar, þið heyrðuð rétt.
Hún er eltihrellir! Þetta er víst í blóðinu.
Þið munið eftir manninum sem sat alltaf fyrir utan húsið hjá Soffíu frænku?
Það er einmitt pabbi hennar Honeybug.
Eltihrellirinn er í blóðinu hennar!

Elsku Honeybug mín, ertu nú viss um að þetta sull sé sniðugt? Ertu viss um að þú fáir ekki í magann af þessu?

*Honeybug verður fúl á svipinn*

“Ég drekk þetta bara ef mér sýnist! Ég fæ þá bara í versta falli eyðni!! Ekki eins og það hafi drepið einhverja hingað til?”

Þetta mun alveg enda vel, alveg eins og í öllum hinum ævintýrunum!
Nei bíðiði nú við….þetta mun víst vera saga en ekki ævintýri…árans vesen!

*Honeybug orðin vel full af þessum landa*

“Ég get sko svarið það að raksápan mín lá hérna á baðkarsbrúninni! Ég sá hana áðan!
Helvítis sturtuhengið! Alltaf fyrir manni!”

*Honeybug grípur í sturtuhengið þegar hún er í þann mund að detta*

“Djöfullsisn drasl er hérna inná þessu litla baðherbergi!?!?!”
Sturtuhengið hennar er með keim af þessu blóði, þessu með eltihrellinum

Honeybug, viltu nú ekki bara fá þér sæti hérna í sófanum?

*Honeybug sem er orðin vel full af landa, búin að borða hrúgu af banana og er líklega til að fá eyðni að hennar mati, byrjar nú að öskra*

“Ég bara geri það sem mér sýnist!! Þessi bangsi þarna vill myrða mig…sérðu ekki hvernig hann horfir á mig?!?! Hann gæti bara vel kaffært mér í valhnetum ef hann vildi!
Og við hvern ætlar þú þá að tala?!?! HA?!?!”
Morðóði bangsinn hennar, sem notar valhnetur sem vopn!

Þegar þessari nótt lauk var Honeybug eltihrellir orðin vel drukkin af landa og með fullan maga af bönunum.
Hún taldi sér trú um að hún mundi í versta falli fá eyðni án þess að deyja.
Sturtuhengið hennar fór í gólfið við hina gífurlegu leit af raksápunni. Ekki spurja mig hversvegna henni vantaði raksápu um miðja nótt
Og bangsinn hennar, sem sat blásaklaus í sófanum, á víst að vera morðóður með valhnetur sem vopn!

Er þetta allt saman bara rugl?
Jahh, maður spyr sig….
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"