Hvernig verð ég eftir 50 ár? *greinakeppni Pr0s* Ég verð án efa í alveg suddalega góðu formi. Ég á eftir að vera 2 og 10 á hæð og alveg helmassaður. Hinsvegar verð ég alveg snargeðveikur og besti vinur minn verður þykk eikarhurð með gullnum hurðarhún. *VALHNETA!*
Ég á samt sem áður 4 konur og 49 börn þar sem að lög á Íslandi árið 2056 leyfa fjölkvæni og offjölgun. Alveg síðan að 19 forseti Íslands, Baltasar Rogerson, setti markmið íslands að vera komin með 2 milljarða íbúa árið 2100 En íbúar íslands eru einmitt komnir á annan milljarðinn árið 2056…Obbobbobb..
Ég hef aflað mér þónokkrar menntunar og til gamans má geta að ég er með háskólagráðu í höstli og slagsmálum. *STURTUHENGI!*
Annars er ég með svona 100-520 milljónir á ári fer eiginlega bara eftir veðri. Ég er nefnilega maðurinn sem að sér um hvernig veðrið verður…EN það eru nýjungar sem að koma ekki fyrr en árið 2039. *BANGSI!*
Ég hef einnig unnið mikil og stór afrek fyrir hönd Íslands en ég þjálfaði einmitt línudanslið Íslendinga sem að vann HML (Heimsmeistaramót Línudansara) árið 2034 og svo varð ég sjálfur heimsmeistari í keilukasti árið 2039 og svo aftur árið 2041 sem er einmitt sama ár og það var í tísku að ganga um nakinn. *BANANI!*
Þjóðfélagsbreytingar hafa orðið þónokkrar. T.d. er bleikur núna þjóðarlitur Íslendinga og Páfinn býr núna á Íslandi…og hann er tvíkynhneigður. Einnig er Ísland flutt aðeins syðra af því að það var orðið svo andskoti kalt. *ELTIHRELLIR!*
Alheimurinn er núna orðinn gulur og tunglið er búið að stækka um helming, en bara lóðrétt. Einnig eru Fasistar allsráðandi. *RAKSÁPA!*
Mengun er ekki til lengur, henni var eitt eftir að Kristófer Áttundi Danakonungur sendi danska herflotan á hana. Það virkaði reyndar ekki vel þar sem að mengun réðst á danska flotann og gjöreyddi honum. Danski flotinn sendi eftir liðsauka og ég kom hlaupandi eftir sjónum og malbikaði hana….á sjónum…. *EYÐNI!*
Tækniþróun er orðin alveg mögnuð. M.a. er búið að finna upp á sjálfvirkum vinum sem að get breytt sér í vélmenni og svo er einnig búið að finna upp á sykurlausum sykri sem er ekki beint sykur en er samt sem áður sykur…eða svona eiginlega. *LANDI!*
Ég vil einnig taka fram að ég hef alltaf verið snargeðveikur, ímyndunarveikur og alveg hrottalega flippaður. Þetta er ekkert sem ég fékk á elliárunum heldur hefur þetta alltaf verið svona. =D



Eftirmáli: Mwahahaha, ég fann leið í gegnum systemið hennar Lindelou! :D
…Enginn annar að nota það samt. Ég er búinn að copyright-a það -_-

Kv. Raiden ™



P.S.

Hver er þessi foli með skeggið og afró-ið á myndinni?

Enginn verðlaun í boði :D