Halló

Ég heiti Gísli

Ég er karlmaður á úrvalsaldri

Ég hef áhuga á því að finna konu til að deila með mér lífinu

Ég vil að hún sé sátt við að fá það í sitjandann

Ég þakka fyrir mig

Bless



Þetta er nýr ljóðstíll sem ég var að hanna

Þetta er ljóðstíll, svo öðruvísi, svo öfgafullur

Ljóðstíll sem býr til ljóð sem enginn skilur, en það gerir fólk ekki með venjulegum ljóðum

Ljóð eru alltaf svo skiljanleg…

þessir þrír punktar áttu að merkja kaldhæðni

Ég vona að þið hafið ekki tekið þessa þrjá punkta sem einhvers konar … þarna kemur það aftur!

Af hverju er ég að þessu… Shit! Ég er byrjaður að tala með svona biðdrasli í endann eins og ég sé að þylja einhverja helvítis romsu um eitthvað bull!

Ég er HÆTTUR þannig vitleysu!

hmm

hvernig á ég núna að enda setningar?

Með punkti?

Það er svo kjánalegt að hálfa væri nóg.

En herru!

Æi þetta er kjánalagt af mér að vekja ykkur umhugsunar að skrifa þrjá punkta í enda á setningu er voðalega kjánalegt að mínu mati…

Þannig að áfram með söguna!

Já!

Ljóðstíllinn minn!

Hvað ætlaði ég aftur að segja?

Já!

Síðan að Guðmundur fluttist á mölina eftir 14 vetra á gamla bóndabýlinu fannst honum hann vera svo einfaldur

Svo kjánalegur

En síðan byrjaði hann að ganga í flottum fötum, og stelpurnar voru byrjaðar að sýna honum áhuga

En þá brást fyrir honum ljós!

Hann er einungis silungur á þurru landi!

Hann spriklar á dansgólfinu og finnur að hann geti ekki andað


Silungur

Þó þú dansaðir fínt

En sama hversu fallega þú dansaðir

Braut ungfrú Jones

þvottinn


Eins og hér sést er frábært að setja inn eitthvað helvítis bull í annars mjög fallega sögu…

Þetta ljóð gerir ekkert annað en að vekja fólk til umhugsunar;“Af hverju í fjandanum braut hún þvottinn?”

Þá tefst fólk við lesturinn og verður smá boggled

Því þvottaatriðið á ekkert samhengi í sögunni

En áður en þið teljið að ég sé einhver kjáni sem viti ekkert hvað er að skrifa

Hugsið út í það að vera á strandi á eyðieyju með engan mat og ekkert vatn

Og úti á hafi sjáið þið bát

Finnst haldiði að þetta séu kannski hillingar

En síðan nálgast báturinn og hann stoppar nokkrum fetum eða skrefum eða whatever þessir sjógaurar kalla metrana sína

Kallar síðan upp að landi


Komdu

niður gamli vin

undirbúningur fyrir endurfjármögnun

húsi móður systur

ömmu


Þarna tekst þeim með nokkrum setningum að rugla í manninum sem var stranda og hann heldur að ættaróðal maurafjölskyldunnar sé grafið á botni jarðarinnar þannig að hann grefur og grefur og grefur

og grefur…

og grefur…

og grefur…

Og hann grefur í alveg nokkra daga, og kemst einungis nokkra metra áður en hann dó úr sólsting

En hverjum er ekki sama?

Ekki mér

spurningin er samt sú

hvað með þig?