Núna sit ég heima hjá mér

Ég er allsber

Ég hugsa um blómin og hafið

Þegar ég drekk heitt kakó og ég helli á mig verð ég geðveikt pirraður

Ég týndi nærbuxunum mínum í gær og ég var svo pirraður að þegar köttur nágrannans kom í gær og spurði hvort ég ætti nokkuð hass sagði ég bara “Hey ertu eitthvað flippaður!?” Hann bara sagði nei

Ég fór þá bara í ísskápinn og náði í kjúkling, klæddi hann á höndina mína og sagði “Brian, do not open the vent, there is the monster that only knows how to calculate the square root of 4”

Svo kisi fór bara til Noregs og vann á olíuborpalli

Á meðan ákvað ég að hlaupa út allsber og reyna að stofna stjórnmálaflokk en þá var ákveðið af utanríkisráðuneytinu að það væri aðeins leyfilegt að búa til stjórnmálaflokk stjórnað af geðsjúklingi einu sinni á ári

Þannig að ég braust inn til einhverrar konu og stal rúmfötum og klæddi mig í þau

Hún var heima

Hún var fúl

Ég var bara “Hey, áttu ristað brauð? Ef svo er, það er að brenna!!”

Hún var bara "OMG Roflzor, og hún skoppaði eins og engisspretta inn í eldhúsið og kveikti á eldavélinni. Ætlaði svo að elda fyrir mig grjónagraut en mér tókst sem betur fer að flýja.

Þá komst ég að því að það var verið að sýna mynd með Shaq í aðalhlutverki svo ég hljóp eins hratt og ég gat frá bíóhúsinu því eins og allir vita er bara lame að horfa á Shaq í bíó! Það er eins og að henda peningum í sjálfssala og fá bara spark í punginn af einhverjum gaur sem ákvað áður en hann fór í morgun að bleyta tusku og setja yfir heita pönnu og finna lyktina af brunnri blautri tusku áður en hann fór í vinnuna

En núna fattaði ég að ég var kominn út á höfn!

Þar voru fullt af litlum og stórum bátum en það sem var áhugaverðasta þarna var dauður mávur!

þarna lá hann í makindum sínum og var dauður og ég var svo sár að ég ákvað að kveikja í skemmtistað! En það var bara kúl fyrir hádegi svo ég ákvað að hlaupa í saumabúð og kaupa net sem ég myndi svo nota til að veiða Pólverja!

En þar sem Pólverjar eru geðveikt nettir gaurar ákvað ég að hætta við það heldur ákvað ég að stela bát!

Það er svo flippað!!!

Ég klæddi mig úr því sem ég var í og hljóp upp í bát.

Í bátnum var enginn nema einhver gaur sem var að reyna að leysa þrautina með 3 flugvélar sem þurftu að fara í kringum heiminn og hann var sko pirraður

Hann var álíka pirraður og þegar ég var einu sinni að labba heim í Keflavík og það kom einhver kerling og henti eggi í mig! Ég var svo fúll að ég gerði samning við Sandra Bullock og hún gaf mér hring sem gerði það að verkum að ég leit út fyrir að vera giftur og ég tældi gamla konu og ég giftist henni, við fluttum í hús rétt hjá lögreglustöðunni og þar áttum við heima þar til ég varð 45 ára en þá ákvað ég að hætta að vinna sem bensíntittur og gerðist bara róni.

En það er nú önnur saga

Núna er ég í bát

Muniði það ekki?

Hitt var bara svona side story eins og í Family Guy

Ég veit þetta er ógeðslega plebbalegt að koma með einhverja sögu til að fá fólk til að gleyma öllu hinu sem ég var búinn að segja en hey, þetta var komið út í dálitla vitleysu þannig að við skulum byrja aftur.

Halló

Ég heiti Rögnvaldur

Ég er nemandi í Breiðholtsskóla

Ég er ljóshærður og ég klæðist fallegum fötum

Ég er tilbúinn að fórna mér!

Ég er tilbúinn að taka þátt í fyrstu íslensku sápuóperunni!

Ég vil leika Claude, læknir sem á það til að sofa hjá fallegu kvenfólki!

That is all