Viðtal við vegg Góðan dag góðir hugarar. Ég var með hljóðneman og græjurnar og ákvað víst að taka gott viðtal við vegginn minn. Hann hefur lent í mörgum ævintýrum yfir árin og mig hefur alltaf langað til þess að deila því með almenning. Og ég vil benda ykkur á það að þessi mynd hefðar greininni mjög vel…Á sinn hátt. Gjöriði svo vel!

Gexus: Sæll veggur minn, hvernig hefurðu það í dag?
Veggur: Jú takk, ég hef það bara fínt…
Gexus: Gott að heyra, gott að heyra…Heyrðu mig hefur lengi langað til þess að spyrja þig persónulegra spurninga…Heldurðu að þú sért tilbúinn í svoleiðis?
Veggur: …Jú ætli það ekki…*sigh*
Gexus: Yndislegt! Heyrðu mig langar til að byrja á fyrstu árum þínum. Hvar varstu tildæmis búinn til?
Veggur: Hmm, jú ég var til hér í húsi þínu. Það var hér bakvið mig í hinu herberginu þar sem iðnaðarmenn tveir hrærðu saman ýmsum steypuefnum og svo framvegis. Það einmitt vantaði vegg hér á milli svo þeir settu mig þar sem ég er í dag.
Gexus: Jájá, og hvernig upplifun var það að “gerast til” ?
Veggur: …Blaut.
Gexus: Jahá!…Já, og hvað svo?
Veggur: Jú svo nokkrum vikum seinna kom aðili sem ég man eftir sem “málari”. Hann málaði mig eggjahvítann á litinn. Og ég er víst sami litur enn þann dag í dag.
Gexus: Æðislegt, og ertu ekki ánægður með litinn?
Veggur: Nei. Það var hvítur maður sem drap móður mína.
Geuxs: *Heyrir eitthvað skrýtið hljóð úti og hlustar ekkert á vegginn* Yndislegt, yndislegt! :-)…..Og Hvernig var fyrsta árið þitt eftir nýja litinn þinn ?
Veggur: Það var erfitt. Þið mannskepnur boruðuð endalaus göt á mig bara til að hengja myndir á mig, svo finnst ykkur myndirnar ekkert passa við svo þið setjið bara andskotans hillur fyrir…Og ekki nóg með það heldur troðið þið fataskáp við hornið á mér og hann líka festur við mig með þessum andskotans skrúfum sem angra mig allan dag!
Gexus:…Jahá! Og það er ekkert vandamál að anda er það nokkuð ?
Veggur:…Hefurðu tekið eftir því nýlega að ég er veggur?
Gexus: Veggur smeggur! Þú ert alltaf jafn sexy í mínum augum.
Veggur:…Ég veit ekki hvort ég á að taka þessu sem móðgun.
Gexus: Jahá! Hvað segirðu um að við höldum áfram með viðtalið?
Veggur: Helst ekki…
Gexus: Yndislegt! Jæja segðu mér nú, hefurðu einhverntíman orðið ástfanginn ?
Veggur: Tjahh, þessi veggur í hinu herberginu er mjög sexy. En ég veit eiginlega ekki…
Gexus: Jájá, en hérna geturðu sagt mér hvað er það mest spennandi sem hefur komið fyrir þig?
Veggur: Þegar kötturinn þinn reyndi að klóra mig til að “rétta úr” klónum sínum eða hvað það sem hann var að gera!!
Gexus: Það er merki um að hann sé ástfanginn af þér. Kiþur eru nebbla þvo þædar! :)
Veggur: Það er mjög sexy á mjög viðbjóðslegan hátt.
Gexus: Ú! Það er kominn matur, ég nenni ekki að tala við þig lengur! Bless :-)
Veggur: En hey! Bíddu ég gleymdi að segja þér að ég er kona! :O