Óþarfa upplýsingar um MJK Ég þjáist af mjög pirrandi ókosti, sem kallast hugleg þráhyggja.
Hún virkar þannig að ég bít í mig einhvað, manneskju, hlut eða atburð og ég verð að fá eins miklar upplýsingar um það og ég get, þar af leiðandi er ég full af svona óþarfa vitneskju um alla hluti…

Eins og hugarar hafa kanski tekið eftir síðustu daga, er miðpuntur minn akkurat núna Maynard James Keenan.
Svo ég skal henda framm öllu sem ég veit um hann…
Ég vil taka það framm að ég get ekki komið með heimildir fyrir öllu, og sumt gæti verið algert kjaftæði…
En, endilega leiðréttið, ef þið þykist vita betur :)

Hanns raunverulega nafn er James Herbert Keenan, og er fæddur í Ravenna, Ohio þann April 17, 1964.
Áður en hann gekk í herinn árið 1982, (já hann er hermaður) hafði hann búið í Michigan, New Jersey, New York, Oklahoma, Kansas og Texas.
Hann gekk í herskóla á árunum 1983 til 1984, og kláraði herskyldu.
Eftir að hann losnaði úr hernum stundaði hann listnám við Kendall College of Art and Design.

Árið 1990 sotfnaði hann uppáhalds hljómsveitina mína Tool, og seinna eina af mínum uppáhalds böndum A Perfect Circle , þar sem hann semur alla tónlist og texta
http://www.toolband.com/
www.aperfectcircle.com

Hann er fæddur inn í Baptista fjlölskyldu sem á ættir að rekja til Ítalíu og Írlands.
Lengi fann Keenan ekki fró í trúmálum, en nýlega fann hann trúnna í trúar hreyfingu sem kallar sig Flower of Live, sem í raun snýst um að opna sálina til að upplifa “All there is” sem er þeirra skilgreining á hvað guð er.
http://www.lyricsondemand.com/t/toollyrics/fortysix2lyrics.html 46&2 þar sem hann hann syngur um trú sína.

Maynard er stofnadi og eigandi fyrsta víngerðarbúgarðs í Arizona, Merkins Vineyards.
Enn er ekki hægt að kaupa vín úr hanns framleiðslu nema að heimsækja búgarðin eða að panta á netinu… enda tekur mörg ár að koma svoleiðs batteríi í gang.
Hann býr einnig í A.Z
www.caduceus.org

Hin skaðandi og skapandi undirmeðvitund hanns kallast Puscifer.

Stærðin á typpinu á honum er 15,24 cm .
Maynard´s dick lyrics http://www.lyricsondemand.com/t/toollyrics/maynardsdicklyrics.html

Merkilegasti staður sem hann hefur heimsótt eru píramítanir í Egyptalandi.
( að eigin sögn )

Maynard hefur ekkert umburðalyndi fyrir efnishyggju og sýndarmensku, enda hatar hann L.A. og vonar að heimsendir komi fljótlega, bara svo hann geti verið vitni að eðileggingu borgarinnar og allt sem hún stendur fyrir.

Hann hatar að gefa viðtöl, þannig að það er ekki mikið til af þeim.

Hann forðast að lenda í aðstöðum þar sem hann er idol-læsaður og að hafa mikil samskifti við aðdáendur vegna þess að hann vill ekki að frægð og frami stígi honum til höfuðs og hafi áhrif á að hann sé hreinskilin við sjálfan sig og lagasmíðar sínar.

Það sem hann elskar mest í heiminum er áfengi, og hann er með fatalínu sem heitir ATF eða “Alcohol Tobacco Firearms” sem er hannað fyrir fólk sem er subbulegt á djamminu.
Hann hannar líka boli sér til skemtunar, hægt er að kaupa þetta hérna. www.puscifer.com

Það sem hann elskar næst mest er kvenfólk, af öllum stærðum og gerðum, og segist sjá einhvað fallegt við hverja einustu konu.

Hann er vinnualki að eigin sögn og hann þjáist af athygglisbresti/ofvirkni (man ekki hvort það var eða hvort það er bæði) eða “ADHD”.

Annað hvert orð sem kemur út úr honum er blótsyrði og hann er ekki feiminn við að bölva fólki.

Þið getið hlustað frítt á tónlistina hans á www.radioblogclub.com á þess að þurfa að dánlóda
Og lesið texana við lögin á www.lyricsondemand.com

Þá er þetta komið bara, og vonadi kemur þessi vitneskja ykkur að góðum notum.