Geir! Fótur Réttlætisins!! Og Dr.Stígvél - Kafli.1 “Hvað er þetta í himninum? Er þetta Fugl? Er þetta Flugvél? Bíddu við… er þetta kannski einhver asnalegur ofurfótur sem kallar sig Geir!?”

Nei! Þetta er:

Geir! Fótur Réttætisins!!

“En…ég sagði það…”
errr tja það heyrði það enginn….
“En… En..”
ÞAÐ HEYRÐI ÞAÐ ENGINN SEGI ÉG! ÚT MEÐ ÞIG NÚ!
“En… En… *snökt* *snökt* Ég vildi bara eignast vini *snýt* *snýt*”
ÚT sagði ég!!
*Óvelkomni maðurinn gengur út niðurdreginn með gúmmíkjúklinginn sinn Edda í Eftirdragi*

Hann DÓ þetta kvöld… úr einmannaleika… Þetta kennir okkur hvað?
Ekki skilja fólk eftir út undan því að það gæti dáið!

AFTUR AÐ GEIR!

Vakniði illu durgar, því að Geir er hér!! Kominn til að sparka glæpi í rassinn með sjálfum sér! Ekkert getur stöðvað hann, ekki einu sinni hann sjálfur!

En hver er Geir?…Geir er Stökkbreyttur ofurrisafótur sem býr í Borgin-sem-Geir-býr-í borgin sem að glæpur réði ríkjum þar til Geir kom til sögunar. En það eru enn ofurglæponar… og þar fremstur í flokki er:

DR.STÍGVÉL! *dumm dumm duuuuuuuum!*

Svo illt Stígvél að meirað segja illskan sjálf skelfur við hljóð í hans nafni, löndin öskra, beljurnar jarma, Kindurnar baula, allur heimurinn stendur í ringulreið þegar hans nafn fer í gegnum eyru alheimsins. Jæja ég held að þið fattið það. við skulum fylgja Dr.Stígvél inn í ofurfylgsni hans:

*Maður með kryppu spilar creepy lag á Orgel á meðan að Dr.Stígvél situr í hásæti sínu raulandi með í sinni illu djúpu röddu*
“Siggi!!… SIGGI!!” Siggi var sonur Dr.Stígvéls
“Já Faðir kær” svaraði Siggi, Siggi var ekki stígvél, heldur vélrænn sokkur með hendur… Faðir hans senti hann í venjulegan skóla bara svo honum yrði strítt. Það er pissað á hann á hverjum einasta degi.
“Siggi komdu með Möppuna mína!”
Siggi gerði eins og faðir hans sagði, hann færði honum stærstu möppu alheimsins, hún var á hæð við Mount Everest og jafn breið og Sólin! Í henni mátti finna hið fullkomna plan, áætlun til að eyða….
….Geir Fæti Réttlætisins!….*DUMM DUUUUUUMM!*
Dr.Stígvél dró út lítið bleikt blað úr möppuni
“Muhahahahahahahahahahahahahahahaha AHAHAHAHAHAHAHAHAHA HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!”
“Hví hlærðu faðir?” Spurði Siggi

Siggi dó þetta kvöld…

Á meðan var Geir bjargandi lítilli stúlku út úr brennandi byggingu
“TAKTU HÖND MÍNA!!!” hrópaði Geir í sinni asnalegu, djúpu röddu
“En… En… Þú ert Fótur” sagði litla stúlkan hneyksluð.
“TREYSTU MÉR!!” hrópaði hann aftur
“Hvað ertu að tala um maður? Þú ert ekkert með neinar hendur!!!”
“Ef þú getur ekki treyst mér… þá munum við öll láta lífið…” hann leit á hana með alvarlegu augnráði (ojjj fótur með augu…)
Stúlkan ypti öxlunum og ákvað að stökkva og grípa í hann en hún sökk því miður á milli tveggja tánna…
“Ahhhh neeeei, NEEEEI! Ég vil frekar Brenna!! Hjálpið mér!! Einhver!? Hver sem er!? Neeei NEEEI Aghhhhhh *gralg* *gralg*”

… hún er enn ófundin…

TO BE CONTINUED

Hvað gerist næst? Hvernig varð Geir að Fæti Réttlætisins? Hvert er Plan Dr.Stígvéls? Hvað gerðist fyrir Stúlkuna? Hver er Nonni!?!? Þið munuð finna út aðeins minna en helmingin af þessu í næstu sögu af:

GEIR!! FÓTUR RÉTTLÆTISINS!!!